Heilsa

Rækjukokteill í nýjum búningi

VISIR.IS/EVALAUFEY

Í mínum huga er rækjukokteillinn sem bæði amma og mamma voru með fyrir okkur fjölskylduna á tyllidögum sá allra besti. Gamlar og góðar uppskriftir eru eins og fjársjóður, ég held mikið upp á þær uppskriftir og finnst gaman að prófa mig áfram með þær. Þessi rækjukokteill er einmitt dæmi um gamla uppskrift í nýjum búningi.

500 g rækjur

Handfylli ferskur kóríander

½ - 1  fræhreinsað  rautt chilialdin

1 stk lime, safinn

Salt og pipar

1 avókadó

1 gul melóna

Blandað salat

Aðferð: Setjið kóríander, rautt chilialdin, límónu safann, salt og pipar í matvinnsluvél. Hellið leginum yfir rækjurnar og blandið vel saman. Látið standa í 1 – 2 klukkustundir í ísskáp. Skerið annað grænmeti í litla bita og blandið rækjum saman við. Skiptið rækjublöndunni niður í kokteilglös og berið réttinn gjarnan fram með ristuðu brauði.

Ekki missa af Matargleði Evu á fimmtudagskvöldum klukkan 20.10 á Stöð 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.