Lífið

Kynning á keppendum: Magnús og Ívar ætla sér á Wembley

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Úrslitaþáttur Ísland Got Talent verður í þráðbeinni útsendingu á Stöð 2 úr Got Talent Höllinni næstkomandi sunnudagskvöld. Sex atriði keppast um hylli dómara og áhorfenda í þeirri von að standa uppi sem sigurvegari og hljóta tíu milljónir króna að launum.

Til að hita upp fyrir úrslitakvöldið fengum við þátttakendurna sex til að svara nokkrum laufléttum spurningum. Spurningarnar sem voru lagðar fyrir keppendur voru hvaðan þeir kæmu og hvers vegna þeir hefðu tekið þátt. Einnig hvar þeir sæu sig eftir fimm ár, hver sé uppáhaldsdómari keppandans og að lokum í hvað hann myndi nota milljónirnar tíu sem fást fyrir að sigra.

Magnús og Ívar koma frá Seltjarnarnesi og Eskifirði. Þeir eru báðir sammála um það að Jón Jónsson sé uppáhaldsdómarinn þeirra og eftir fimm ár ætla þeir að vera staddir á Wembley á fótboltaleik.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.