Heilsa

Ertu að nota linsurnar rétt?

Rikka skrifar
visir/getty
Margir þeir sem að þurfa á gleraugum að halda nota einnig linsur samhliða gleraununum. Augun eru viðkvæmt svæði og ber því að fara varlega þegar kemur að linsunum. Það eru nokkur atriði sem hafa þarf ofarlega í huga við notkun linsanna.

Hreinlæti

Mikilvægt er að þvo hendur vandlega í hvert skipti sem linsur eru handfjatlaðar. Kynnið ykkur nákvæmlega leiðbeiningar um notkun á þeim vökvum sem á að nota. Skiptið um vökva í hvert sinn sem linsurnar eru notaðar. Einnig er mikilvægt að skipta reglulega um geymsluvökva þegar linsurnar eru ekki notaðar í lengri tíma.

Linsur og veikindi

Ekki er mælt með því að nota linsur þegar flensa eða önnur veikindi gera vart við sig. Bakteríur og vírusar geta auðveldlega smitast í linsuboxið og aftur í augun þegar þú ert orðin frískur.

Notkunartími

Varast skal að ofnota snertilinsur. Flest augu virðast þola 8-10 klukkustunda notkun daglega ef engin óþægindi gera vart við sig. Notið hvert linsupar ekki lengur en mælt er með, bíðið ekki eftir að linsan valdi óþægindum. Við langtímanotkun á snertilinsum er nauðsynlegt að fara á 1-2ja ára fresti til augnlæknis í eftirlitsskoðun.


Linsubox

Linsubox ber að skipta um á 3.mánaða fresti og þess á milli þarf að þrífa það vel og vandlega. 








×