Heilsa

Hik! Hiksti, hjálp!

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Hver kannast ekki við að fá hvimleiðan hiksta sem ekki er hægt að losna við?

Samkvæmt Vísindavefnum og Doktor.is er hiksti:

Hiksti er krampi í þindinni sem veldur snöggri innöndun sem stöðvast síðan jafn snögglega við það að bilið á milli raddbandanna lokast, en það veldur einmitt hljóðinu sem fylgir þessum kvilla. Algengasta orsök hiksta er sú að fólk kann sér ekki magamál, hvort heldur í mat eða drykk. Þegar fólk borðar eða drekkur of mikið þenst maginn út og þrýstir á þindina.

Lágt hlutfall af koltvíildi í blóði gerir hiksta verri, og með því að halda niðri í sér andanum á maður að geta læknað hiksta, en þá hækkar einmitt hlutfall koltvíildis í blóðinu. Hiksti hefur einnig verið læknaður með því að láta fólk anda að sér koltvíildi.

Nokkrir punktar um hiksta:

Charles Osborne, Bandaríkjamaður, fékk hiksta árið 1922 og hikstaði látlaust í meira en 60 ár. Hann átti erfitt með svefn, þjáðist af blóðnösum og uppsölum.

- Til að losna við hiksta getur þú prófað að kyngja þrisvar, drekka kalt vatn eða gleypa mintu

- Í raun er ekki til nein lækning við hiksta heldur aðeins að trufla hann með því að örva kokið með einum eða öðrum hætti

- Leitaðu til læknis ef hiksti varir í meira en þrjár klukkustundir eða truflar við mat og svefn

- Algengt er að fóstur og ungbörn fái hiksta

- Algengara er að karlar fái langvarandi hiksta (sem endist í um tvo sólahringa)

- Ef algeng húsráð ráða ekki við hikstann þá getur þó prófað að bíta í sítrónu eða í tunguna á þér

- Hiksti getur komið vegna tilfinningauppnáms, hitabreytinga, reykinga og drykkju áfengis

- Enn annað ráð við hiksta er að borða skeið af sykri eða sírópi









×