Heilsa

Fjallaskíðin koma þér lengra og hærra

Rikka skrifar
Fjallaskíði verða sívinsælli með ári hverju enda töluvert lengra og hærra hægt að fara á þeim en hefðbundnum skíðum.

Hægt er að fara á sérstök námskeið í fjallaskíðamennsku og er mælt með því áður en að fólk fer af stað. Fjöllin geta verið varhugaverð og að ýmsu að huga, til að mynda hvernig á að haga sér ef að þú lendir í snjóflóði, hvaða búnað þarftu að hafa með þér til þess að tryggja öryggið þitt og hvernig lestu í umhverfið þitt.

Á Ísafirði hitti ég fyrir Rúnar Karlsson hjá Borea Adventures en hann er ansi mikill sérfræðingur þegar kemur að fjallaskíðamennsku. Í myndbandinu hér fyrir ofan segir hann okkur allt sem forvitnum þyrstir að vita um fjallaskíðamennsku og -ferðir. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×