Fótbolti

Tíu menn PSG slógu Chelsea út í framlengingu | Sjáið mörkin og rauða spjaldið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
David Luiz fagnar jöfnunarmarki sínu með tilþrifum.
David Luiz fagnar jöfnunarmarki sínu með tilþrifum. Vísir/Getty
Franska liðið Paris Saint-Germain varð í kvöld fjórða liðið til þess að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta eftir að liðið náði 2-2 jafntefli á móti Chelsea á Stamford Bridge í dramatískum leik svo ekki sé meira sagt. Paris Saint-Germain fer þar með áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.

Frammistaða Chelsea olli miklum vonbrigðum og liðinu tókst ekki að nýta sér það að stóru dómar leiksins hafi fallið með enska liðinu. Lærisveinar Jose Mourinho sóttu ekki sigurinn ellefu á móti tíu og þurftu á endanum að sætta sig við að falla úr leik í sextán liða úrslitunum.

Frakkarnir náðu þar með að hefna fyrir tapið á móti Chelsea í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í fyrra.

Chelsea liðið lék manni fleiri frá 32. mínútu leiksins eftir að Zlatan Ibrahimović fékk beint rautt spjald en tókst engu að síður að jafna tvisvar sinnum eftir að hafa lengt marki undir.

Leikmönnum Chelsea tókst ekki að nýta sér liðsmuninn og heldur ekki að halda út á lokamínútunum eftir að Gary Cahill kom liðinu í 1-0 níu mínútum fyrir leikslok. David Luiz jafnaði nefnilega metin á 86. mínútu.

Staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma alveg eins og í fyrri leiknum í París en Eden Hazard kom Chelsea í 2-1 í framlengingunni með því að skora úr vítaspyrnu á 96. mínútu.

Leikmenn Paris Saint-Germain gáfust ekki upp og Thiago Silva, sem hafði fengið dæmda á sig vítaspyrnuna, tryggði sínu liði sæti í næstu umferð með því að jafna metin á 114. mínútu leiksins.

Rauða spjaldið á Zlatan Ibrahimović leit út fyrir að vera dauðadómur fyrir franska liðið en flestir geta verið sammála að það hafi verið rangur dómur hjá Hollendingnum Björn Kuipers.

Paris Saint-Germain sýndi hinsvegar magnaða frammistöðu manni færri og vann einn stærsta sigurinn í sögu félagsins.

Zlatan Ibrahimović fékk rautt spjald eftir 32 mínútur Cahill skorar fyrir Chelsea David Luiz tryggir PSG framlengingu Hazard skorar í framlengingunni Markið sem sendi Chelsea út úr Meistaradeildinni



Fleiri fréttir

Sjá meira


×