Heilsa

Sjálfsfróun para

sigga dögg skrifar
Sjálfsfróun er algeng og heilbrigð
Sjálfsfróun er algeng og heilbrigð Vísir/Getty
Sjálfsfróun er oft fyrsta kynlífsreynsla einstaklings.

Þegar viðkomandi eldist og fer í samband þá heldur sjálfsfróun enn áfram að vera mikilvægur hluti af kynlífi viðkomandi, hvort sem er í einrúmi eða með maka.

Fyrsta kynlífsreynsla margra unglinga með öðrum einstaklingi eru því gjarnan gagnkvæmar gælur hvort við annað með höndunum. Sumir kynfræðingar mæla með að þegar fólk stígur sín fyrstu skref saman í kynlífi þá sé gott að örva fyrst eigin kynfæri með bólfélaga svo bólfélagi geti lært á líkamann. Í ljósi þess að sjálfsfróun er mikið tabú fyrir sumum einstaklingum þá gæti þetta verkað sem óyfirstíganlegur hjalli en hann er samt mikilvægur liður í kynlífi og að læra um líkamann og unað.

Sjálfsfróun með maka er því kjörin leið til að sýna viðkomandi hvað þér þykir gott, hvernig þú snertir þig og veitir þér unað auk þess að vera gott fóður fyrir fantasíur makans þegar stundar sjálfsfróun í einrúmi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.