Lítil brjóst sigga dögg skrifar 23. febrúar 2015 09:00 Vísir/Getty
Brjóst eru oft talin eitt merki kvenleikans og þá skiptir stærð máli. Það er í raun hvorki gott að vera með of lítil né of stór en matið er huglægt og misjafnt á meðal fólks hvar fegurðarmatið liggur. Of stór brjóst geta valdið líkamlegum og andlegum óþægindum en lítil brjóst valda kannski frekar andlegum óþægindum. Þetta er þó menningarbundið og undir hverjum einstaklingi komið hvernig metur sinn líkama. Í vestrænum heimi leita konur gjarnan eftir brjóstastækkun ef smæð brjósta fer fyrir brjóstin á þeim.Ástæður fyrir brjóstastækkun lítilla brjósta geta því verið ýmsar en kvenleiki er oft nefndur og þá talað um vanlíðan í tengslum við brjóstin fyrir stækkunina. Heimildarmyndin My small breasts and I fjallar um sögu nokkurra kvenna af því að vera með lítil brjóst og rekur myndin hvaða leiðir þær fara til að reyna að stækka þau.
Heilsa Lífið Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Menning