Fótbolti

Þú bara stjórnar þessu karlinn minn | Umræða um atvik gærkvöldsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hörður Magnússon, Hjörvar Hafliðason og Arnar Gunnlaugsson fóru yfir leiki gærkvöldsins í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í Meistaradeildarmörkunum á Stöð 2 Sport og tóku meðal annars fyrir atvik kvöldsins.

Enski dómarinn Mark Clattenburg dæmdi þá mark af Porto í 1-1 jafntefli liðsins á móti Basel í Sviss og strákarnir fóru vel yfir þá ákvörðun en dómarar leiksins tóku sér talsverðan tíma til að komast að niðurstöðu.

Casemiro skoraði markið sem aldrei var dæmt og fékk að fagna því í smá tíma því aðstoðardómarinn eða aðaldómarinn virtust í fyrstu ekki gera athugasemd við markið.

„Það er vinur okkar, sprotadómarinn Kevin Friend, sem sér þetta. Þetta hefur mikið verið í umræðunni að undanförnu en þeir eru bara fyrir Vaclik í markinu," sagði Hjörvar Hafliðason.  

„Mér finnst þetta frábær ákvörðun," sagði Arnar Gunnlaugsson og bætti seinna við:

„Clattenburg sér þetta og línuvörðurinn sér þetta en sjá hvorugur ástæðu til að gera neitt. Sprotadómarinn er í bestu aðstöðunni. Svona á leikurinn að vera. Þetta er sameiginleg ákvörðun allra dómaranna og það er bara fínt því þetta er hárrétt ákvörðun," sagði Arnar.

Strákarnir ræddu nokkur önnur svona mörk og þar á meðal markið sem Ander Herrera skoraði fyrir Manchester United í enska bikarnum á mánudagskvöldið.

„Þetta er öðruvísi en við erum samt að tala um sömu reglu. Þetta er spurningin um hvort hann fipi markvörðinn eða hindri hann einhvern veginn í sínum störfum," sagði Hjörvar á meðan markið var sýnt.

„Þetta er túlkunaratriði hjá þeim sem dæmir leikinn. Í þessu tilfelli er ég mjög hrifinn af því að hann dæmi mark. Mér fannst Rooney ekki hafa svakaleg áhrif á markvörðinn eins og var í Basel-leiknum. Þetta er rosaleg ábyrgð hjá dómara: Hvenær á ég að gera þetta og hvenær ekki. Lögin eru svona hmmm. Þú bara stjórnar þessu karlinn minn," sagði Arnar.

Það er hægt að sjá alla umræðuna um markið hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×