Heilsa

Sítrónur, allra meina bót

sigga dögg skrifar
Sítrónusafi getur bæði bætt heilsuna og veitt góða lykt af heimilinu
Sítrónusafi getur bæði bætt heilsuna og veitt góða lykt af heimilinu Vísir/Getty
Sítrónur hafa gjarnan verið notaðar sem skraut til að lífga upp á stofu- eða eldhúsborðið en þessi ávöxtur ætti að vera til á hverju einasta heimili því notin eru margvísleg.

Heilsufarslega séð þá getur sítrónusafi styrkt ónæmiskerfið því sítrónur eru ríkar af C-vítamíni. Þá getur sítrónusafi einnig stuðlað að betri meltingu og verkar sem orkuskot fyrir líkamann. Það er því ekki úr vegi að kreista hálfa sítrónu eða svo útí eitt vatnsglas á morgnanna til að koma sér af stað út í daginn.

Smá sítrónusafi getur lengt líftíma grænmetis og ávaxta. Til dæmis ef hvítlaukur er maukaður eða ef geyma þarf soðnar kartöflur og blómkál sem eru í vatnsbaði þá er gott að kreista nokkra dropa af sítrónusafa út í.

Sítrónusafa má einnig nota sem annan valkost við salt ef þú ert að reyna takmarka notkun salts. Kreistu sítrónu yfir matinn og það dregur fram bragð hans.

Þó er gott að hafa í huga að ef baka skal með sítrónum þá er betra að baka ekki (eða geyma í) í álformi því sítrónan getur orðið bitur á bragðið.


Tengdar fréttir

Keyrðu upp brennsluna með þessum fæðutegundum

Eftirfarandi fæðutegundir ættu að hjálpa þér að leiðinni að mjórra mitti sé það eitt af markmiðunum ef svo er ekki ættirðu samt að borða meira af þeim bara fyrir hollustu sakir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.