Lífið

Auddi tekur upp nýja Atvinnumenn

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Meðal þeirra sem hafa verið nefnd í tengslum við nýja þætti eru Kolbeinn Sigþórsson, Helena Sverrisdóttir og Gylfi Sigurðsson.
Meðal þeirra sem hafa verið nefnd í tengslum við nýja þætti eru Kolbeinn Sigþórsson, Helena Sverrisdóttir og Gylfi Sigurðsson.
Auðunn Blöndal mun gera nýja þáttaröð af Atvinnumönnunum okkar, en fyrri þáttaröðin naut mikilla vinsælda á sínum tíma. Í þáttunum heimsækir Auðunn íslenska afreksmenn í íþróttum.

„Þetta verða sex þættir og við munum heimsækja nýja atvinnumenn, þetta verða allt ný nöfn,“ segir Auðunn í samtali við Vísi. Hann segir að einhverjir hafi velt því fyrir sér hvort hann ætlaði sér að fara til Barcelona að heimsækja handknattleiksmanninn Guðjón Val Sigurðsson eða til Bolton að heimsækja knattspyrnukappann Eið Smára Guðjohnsen. Þeir voru báðir í síðustu þáttaröð og verða því ekki heimsóttir af þessu sinni.

Af nógu er að taka þegar það kemur að íslenskum atvinnumönnum erlendis. Auðunn varpaði spurningu fram á Twitter hvaða atvinnumenn fólk vildi að hann myndi heimsækja. Svörin létu ekki á sér standa. Stungið var upp á nöfnum eins og Gylfi Sigurðsson, Kolbeinn Sigþórsson, Helena Sverrisdóttir og Ragnar Sigurðsson.

Hér má sjá kynningu frá fyrstu þáttaröðinni.



Auðunn segir ekki vera búið að ákveða hvert verður farið. En hann segir að allir sem hann hafi talað við að svo stöddu hafi tekið vel í hugmyndina um heimsókn. „Allir sem ég hef talað við eru meira en til í þetta. Við erum byrjuð að undirbúa þættina og svo munur tökur hefjast í lok sumars og standa fram á haust. Við stefnum af því að hafa þættina mjög „current“ og munum reyna að stökkva til ef eitthvað stórt gerist hjá einhverjum atvinnumanninum okkar.“

Auðunn segir að huga þurfi að heilmiklu þegar lagt er af stað með tökulið erlendis. „Síðast vorum við alveg með fimm til sex manns að ferðast um Evrópu.“

Þá var Hannes Þór Halldórsson leikstjóri þáttanna og ferðaðist með Auðunni til atvinnumannanna sem voru til umfjöllunar í þáttunum. Eins og flestir vita er Hannes nú landsliðsmarkvörður Íslands í knattspyrnu og sjálfur atvinnumaður. „Já, nú gæti maður jafnvel þurft að heimsækja leikstjórann,“ segir Auðunn og hlær.

Hér að neðan má sjá brot úr fyrstu þáttaröðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.