Það er eitthvað Dave Roback/Hope Sandoval-legt við þetta Björn Teitsson skrifar 11. desember 2014 12:00 Ylja Bjartey Sveinsdóttir og Guðný Gígja Skjaldardóttir. Vísir/Daníel
Tónlist Commotion Ylja Sena Ylja vakti verðskuldaða athygli fyrir samnefndan frumburð sveitarinnar sem kom út fyrir réttum tveimur árum. Sveitin er að miklu leyti byggð í kringum söngkonurnar tvær, Bjarteyju Sveinsdóttur og Guðnýju Gígju Skjaldardóttur. Þær hafa spilað einhvers konar afbrigði af kántrískotinni þjóðlagatónlist og gerðu það með prýði á fyrri skífu þegar sveitin hafði á að skipa slide-gítarleikaranum Smára „Tarfi“ Jósepssyni. Mannabreytingar hafa ef til vill haft áhrif á hljóm sveitarinnar. Nú er Smári horfinn á braut og til liðs við Ylju gengu þúsundþjalasmiðurinn Örn Eldjárn og ryþmadúó skipað Magnúsi Erni Magnússyni og Ingibjörgu Elsu Turchi. Á þesssari nýjust afurð sveitarinnar, Commotion, er hljómurinn ögn meira „indí“, kominn í smá „alt-country“: maður hugsar til Cowboy Junkies eða jafnvel Mazzy Star – það er eitthvað Dave Roback/Hope Sandoval-legt við þetta. Gítarhljómur stækkaður, effekt á trommum, róleg sveimandi yfirferð með fallegum söngröddum. Það eru líka raddirnar sem eru aðalsmerki Ylju, það einfaldlega verður að viðurkennast. Þær Bjartey og Gígja, sem einnig semja flesta textana, ná einstaklega vel saman og raddanir þeirra virkilega til fyrirmyndar. Flutningur laganna er hnökralaus og lagasmíðarnar eru ekkert of flóknar, enda ættu þær ekkert að vera það. Galdurinn felst frekar í að búa til öruggan farveg fyrir raddirnar, með stöku skreytingum hér og þar.Titillag plötunnar fellur helst í þá gryfju að geta hljómað undir hvaða stiklu sem er fyrir bandaríska indí-mynd – en það er nokkurn veginn það versta sem hægt er að segja um plötuna. Sem er gott. Bestu lögin eru „Sem betur fer“, en það hefur fengið mikla spilun í útvarpi nú þegar, „Hlaðseyri“ og „Fall“ sem býður upp á allt það besta sem Ylja hefur upp á að bjóða.Niðurstaða: Mjög góð önnur plata frá hljómsveit sem er stígandi í sinni listsköpun. Einlægur flutningur fallegra laga þar sem raddirnar eru aðalsmerkið.
Gagnrýni Menning Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Menning Fleiri fréttir Speak No Evil: Pabbi er ekki með fulle fem Maður þurfti ekki að vera skyggn Melódrama, morð og hæfilega mikið bótox Sunna Gunnlaugs í skugga karlrembu á djasshátíð Sjá meira