Svakalega fyndið ímyndunarafl Halla Þórlaug Óskarsdóttir skrifar 8. desember 2014 16:15 Leitin að Blóðey
Bækur Leitin að Blóðey Guðni Líndal Benediktsson Vaka-Helgafell Leitin að Blóðey er fyrsta bók Guðna Líndal Benediktssonar, en hún hreppti íslensku barnabókaverðlaunin í ár. Undirrituð var ekki viss um í hvers konar ferðalag hún var að leggja þegar hún hóf lestur þessarar bókar en fljótlega kom í ljós að það var mikil skemmtiför. Bókin er saga í sögu. Hún hefst á því að hinn sjö ára gamli Kristján er sendur í háttinn og hann er alls kostar óánægður með það. Fljótlega stingur afi höfðinu inn um herbergisdyrnar og býðst til að segja honum sögu. Afi lætur Kristján lofa að segja ekki nokkrum manni frá því sem hann ætlar að trúa honum fyrir, en sagan fjallar um ævintýrin sem afi sjálfur lenti í þegar hann þurfti að bjarga ömmu frá afskaplega ljótum og leiðinlegum seiðskratta. Afi er mikil hetja í sögunni og þarf að berjast við alls kyns óvættir en það gengur ágætlega, enda hreystimenni mikið.„Sagan er vel skrifuð og fyrst og fremst brjálæðislega fyndin.“vísir/vilhelmSagan er vel skrifuð og fyrst og fremst brjálæðislega fyndin. Ég hló margoft upphátt – dátt og lengi. Persónusköpun er til fyrirmyndar, bæði sú sem er í höndum afa – en hann segir frá alls konar furðuverum sem hann mætir á ferðum sínum – og svo er afi sjálfur frábær karakter. Sagan er lipurlega framsett og augljóst er að höfundur hefur afar gaman að því að skrifa hana, það skín í gegn og sagnagleðin smitar lesandann. Hún er þétt og heildstæð, þótt sögumaður komi sífellt inn alls kyns útúrdúrum sem eru hver öðrum fyndnari. Ivan Cappelli gerði myndirnar sem prýða kápuna og upphaf hvers kafla. Ljóst er að hann hafði jafngaman af teiknistarfinu og höfundur af sagnagerðinni og leyfir ímyndunaraflinu að leiða sig áfram. Ég vona að við fáum að heyra fleiri sögur af honum afa, en ef ekki þá er þetta allavega bók sem mun klárlega verða lesin margoft á hverju heimili. Vel heppnuð frumraun hjá Guðna.Niðurstaða: Bráðfyndin saga með frábærum persónum sem ætti að höfða bæði til barna og foreldra þeirra.
Gagnrýni Menning Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Menning Fleiri fréttir Speak No Evil: Pabbi er ekki með fulle fem Maður þurfti ekki að vera skyggn Melódrama, morð og hæfilega mikið bótox Sunna Gunnlaugs í skugga karlrembu á djasshátíð Sjá meira