Tónlist

Gaman að troða upp í Bæjarbíói í Hafnarfirði

Þórður Ingi jónsson skrifar
Jónas Sig - Hljómsveitin fer í pásu eftir helgi til að semja nýtt efni.
Jónas Sig - Hljómsveitin fer í pásu eftir helgi til að semja nýtt efni. Vísir/Pjetur
„Ég er mjög ánægður og spenntur að spila þarna, þessi salur í Bæjarbíói er mjög sérstakur,“ segir tónlistarmaðurinn Jónas Sigurðsson, sem treður upp í Bæjarbíói í kvöld ásamt hljómsveit sinni, Ritvélum framtíðarinnar. „Þetta er eitt af þeim fáu sögulegu rýmum sem eru ennþá mjög upprunaleg einhvern veginn, það er rosalega góð stemning þarna.

Það er svolítið sterkt „lókal“ og menning í Hafnarfirði, þess vegna var ég svona spenntur þegar ég frétti að Bæjarbíó væri að fara aftur í gang. Það er gaman að vera hluti af því,“ segir Jónas. Hann stimplaði sig inn í íslenskt tónlistarlíf árið 2007 með sinni fyrstu sólóplötu en síðan þá hefur hann komið víða að, meðal annars í hljómsveitinni Dröngum.

„Við höfum verið að spila mikið á þessu ári og er bandið orðið ansi formað í lögunum. Eftir þessa helgi förum við í smá pásu og verðum komnir með nýtt efni sem við spilum á næsta ári,“ segir Jónas sem gerði, vel á minnst, tónlistina og hljóðheiminn fyrir leikritið Útlenska drenginn sem er nú sýnt í Tjarnarbíói. Fyrir verkið gerði hann lag með rapparanum Kött Grá Pjé. „Hann er algjör snillingur og ég var mjög ánægður með útkomuna,“ segir Jónas.

Tónleikarnir hefjast klukkan 22.00 og kostar 2.000 krónur inn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.