Lífið

Gullhnappur notaður í Talent

Freyr Bjarnason skrifar
Upptökurnar á Ísland Got Talent eru afar viðamiklar og hefur undirbúningur staðið yfir síðan snemma í sumar.
Upptökurnar á Ísland Got Talent eru afar viðamiklar og hefur undirbúningur staðið yfir síðan snemma í sumar. Fréttablaðið/Stefán
Gullhnappurinn Í fyrsta sinn verður gullhnappur notaður í Ísland Got Talent. Fréttablaðið/Stefán
Tveir fyrstu þættirnir í annarri þáttaröð Ísland Got Talent voru teknir upp um helgina.

Upptökurnar eru viðamiklar og hafa þær verið í undirbúningi síðan snemma í sumar.

„Það er mikill spenningur í mannskapnum og við erum spennt að fara í gang á ný með þetta skemmtilega verkefni,“ segir framleiðslustjóri 365 miðla, Gísli Berg.

„Þetta er ein af viðamestu upptökunum sem farið hefur verið í. Við erum með nítján tökuvélar og höfum sett upp stærsta myndver sem sett hefur verið upp á Íslandi. Þetta er tæplega 4.000 fermetra rými í Korputorgi sem við erum að nota,“ segir hann.

Í fyrsta sinn verður notaður gullhnappur í þáttunum sem dómararnir fá á borðið sitt. Sá hnappur gefur þeim möguleika á að senda atriðið beint í undanúrslitin, sem verða í beinni útsendingu. 

Hver dómari getur veðjað á eitt atriði ef hann telur að það eigi skilið að komast áfram. Skiptir þá engu máli þótt aðrir dómarar hafi verið búnir að hafna því. „Þetta kom nýtt inn í Britain Got Talent núna síðast og við tókum það með í okkar konsept. Þetta hefur verið mjög vinsælt hjá þeim úti. Þetta er nýr og skemmtilegur liður í þættinum,“ segir Gísli Berg.

Fyrstu þættirnir í Ísland Got Talent gerast að hálfu leytinu baksviðs. „Þar nýtum við rýmið vel sem við höfum á Korputorgi.“

Alls verða um 160 mismunandi atriði í þáttunum, sem er álíka mikið og í síðustu þáttaröð. „Við erum búin að leita að fólki víða, meira að segja erlendis, og bjóða því að taka þátt. Þetta verður mjög skemmtileg og fjölbreytt sýning sem við erum að setja saman,“ segir hann og bætir við að síðasta þáttaröð hafi slegið áhorfsmet á meðal áskrifenda Stöðvar 2. „Miðað við velgengnina í fyrra vildum við leggja meira í þetta og gera þetta enn flottara.“

Þættirnir hefja göngu sína í lok janúar og dómarar verða Selma Björnsdóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Bubbi Morthens og Jón Jónsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.