Lífið

Hélt alltaf að hún væri ættleidd

María Einarsdóttir.
María Einarsdóttir.

1. Þegar ég var ung hélt ég að  ég væri ættleidd. Ég leitaði ósjaldan að ættleiðingarpappírum sem ég ætlaði svo að nota á mjög dramatískan hátt til að ljóstra upp um foreldra mína og leita að mínum blóðforeldrum.

2. Núna veit ég þó að ég er svo sannarlega dóttir foreldra minna og systir systra minna.

3. Ég mun eflaust aldrei skilja  hvernig gamla dagmamman mín fékk mig til að borða slátur einu sinni í viku. Ég hef ekki beðið þess bætur.

4. Ég hef engan sérstakan áhuga á  næturlífinu lengur. Ég hætti að drekka fyrir tæplega ári og veit ekkert betra en að eyða helgunum í faðmi fjölskyldunnar.

5. Karlmenn eru  æði!!

6. Ég hef lært að maður á alls ekki að…dæma fólk. Það eru tvær hliðar á öllum málum.

7. Ég fæ samviskubit þegar ég  hugsa stundum til baka um hitt og þetta sem ég hefði átt að gera eða taka öðruvísi á. Ég er samt fljót að minna mig á að það sem skiptir mestu máli er hvernig manneskja ég er í dag og allt sem á undan er gengið hefur mótað mig og kennt mér ýmislegt.

8. Ég slekk á sjónvarpinu þegar  ég er ein heima. Þá finnst mér rosa notalegt að glugga í tískublöð og drekka kaffi í rólegheitum.

9. Um þessar mundir er ég upptekin afvinnunni og fullt af skemmtilegum verkefnum þar. Við hjá NTC erum á fullu við að undirbúa vefverslun okkar sem er sérstaklega skemmtilegt verkefni. Einnig er ég mjög upptekin við að koma Oliver syni mínum fyrir á Íslandi þar sem við erum tiltölulega nýflutt heim eftir átta ára búsetu í London.

10. Ég vildi óska að fleiri vissu af  Pocket Coffee. Vala Björk vinkona mín kynnti mig fyrir þessu og ég verð að segja að þetta er algjör snilldarvara. Espresso-skot inni í munnbita af dökku súkkulaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.