Tónlist

Fullur og freðinn

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Thicke stendur í ýmiss konar veseni.
Thicke stendur í ýmiss konar veseni. getty/nordicphotos
Söngvarinn Robin Thicke hefur ekki átt mjög gott ár en hann hefur nú opinberað áfengis- og vímuefnaneyslu sína á meðan hann tók upp lagið Blurred Lines.

Thicke var fullur og í verkjatöfluvímu í upptökuverinu og kom aldrei í viðtal edrú. Fór hann jafnvel með ungan son sinn í viðtal til Opruh Winfrey þegar hann var undir áhrifum.

Þá segir hann að Pharrell Williams hafi í reynd skrifað lagið Blurred Lines en ekki hann sjálfur eins og hann hefur haldið fram áður.

Fjölskylda Marvins Gaye kærði Thicke fyrir stuld þar sem lagið þykir keimlíkt Got to Give It Up en Thicke kom með gagnkæru.

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.