Lífið

Land Ho keypt af Sony

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Alice Olivia hlakkar til að sýna vinum og vandamönnum myndina.
Alice Olivia hlakkar til að sýna vinum og vandamönnum myndina. Skjáskot
„Þetta er búið að vera alveg brjálað, myndin fór fyrst á Sundance-kvikmyndahátíðina og svo var hún keypt af Sony Classic Pictures eftir frumsýninguna. Þetta er engin smá viðurkenning,“ segir Alice Olivia Clarke, leik- og listakona sem leikur í hinni bandarísk-íslensku kvikmynd Land Ho!.

Myndin verður opnunarmynd RIFF-kvikmyndahátíðarinnar sem sett verður í Háskólabíói 25. september. Land Ho! er vegamynd í léttum dúr um tvo roskna vini og ferðalag þeirra um Ísland. Myndin hefur slegið í gegn þar vestra og er nú verið að sýna hana víðs vegar um Bandaríkin og Kanada.

„Myndin var skotin á um það bil tuttugu dögum seinasta haust. Tökuliðið stoppaði frekar stutt og síðan komst hún inn á Sundance. Athyglin sem hún hefur verið að fá er alveg ótrúleg, þetta er einstaklega falleg mynd.“

Alice er frá Ottawa í Kanada en hún hefur búið hér á landi seinustu tuttugu árin með eiginmanni sínum, Kára Eiríkssyni arkitekt. Þau hittust í Kanada þegar hann lærði þar arkitektúr. Í Land Ho! leikur hún ljósmyndara sem rekst á gömlu vinina tvo í heitri laug.

Ásamt því að hafa leikið í öðrum kvikmyndum, eins og The Good Heart eftir Dag Kára og Reykjavík eftir Ásgrím Sverrisson, rekur Alice vinsæla fylgihlutalínu að nafni Týra – ljómandi fylgihlutir.

Alice segist vera afar spennt fyrir opnunarhátíð RIFF þar sem Land Ho! verður loksins frumsýnd hér á Íslandi.

„Það verður gaman að geta sýnt öllum vinum og vandamönnum mínum myndina. Hún var sýnd vestur í Ottawa fyrir nokkrum vikum og það mættu svakalega margir. Íslendingar geta reynt að gera betur,“ segir Alice að lokum.


Tengdar fréttir

Í kvikmynd sem fer á Sundance

Rapparinn Emmsjé Gauti lék í kvikmynd sem er á leiðinni á kvikmyndahátíðina Sundance. Hann var í skýjunum að sjá nafn sitt í gagnagrunninum IMDb.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.