Menning

Alltaf haft þörf fyrir að yrkja

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Brennur er fyrsta bók Stefáns Boga og hann gefur hana út sjálfur.
Brennur er fyrsta bók Stefáns Boga og hann gefur hana út sjálfur. Fréttablaðið/Valli
„Efnið er frekar innhverft. Ýmist það sem blasir við eða eitthvað aðeins dýpra,“ segir Stefán Bogi Sveinsson um yrkisefni sín í bókinni Brennur.

„Í mínum huga snýst ljóðagerð um að taka einhverja tilfinningu, ýmist að láni, eins og hún er í dag eða rifja hana upp og pakka henni í umbúðir þannig að hægt sé að afhenda hana öðrum. Galdurinn er að gera það þannig að viðtakandinn tengi við innihaldið.“



Titill bókarinnar er sóttur í samnefnt ljóð sem fjallar um vissan atburð.



„Hús afabróður míns brann. Hann var ekki heima og sagði það hafa verið slæmt því hann hefði aldrei séð hús brenna. Stundum óskar maður þess að geta tæklað hlutina af slíku æðruleysi þegar brennur hjá manni í ýmsum skilningi,“ segir Stefán Bogi sem kveðst alltaf hafa haft þörf fyrir að yrkja.

„Ég byrjaði ungur að koma tilfinningum í ljóð og hef verið frekar lítið feiminn með það, las upp bæði í grunnskóla og menntaskóla og er í ljóðahópnum Hása kisa hér fyrir austan.“

Stefán Bogi vinnur á Austurfrétt sem rekur staðbundinn vefmiðil og gefur út Austurgluggann. Hann fæst líka við leiðsögn og þegar samtalið fer fram er að skreppa með félögum sínum á Borgarfjörð eystri þar sem undirbúningur undir Bræðsluna er að hefjast.

„Mér finnst gaman að taka þátt í skapandi verkefnum,“ segir skáldið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.