Íslenski boltinn

Atli Viðar með mark á hálftíma fresti í síðustu sex leikjum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Atli Viðar Björnsson er með níu mörk í síðustu sex leikjum sínum í Pepsi-deild karla.
Atli Viðar Björnsson er með níu mörk í síðustu sex leikjum sínum í Pepsi-deild karla. Vísir/Getty
Atli Viðar Björnsson hefur ekki fengið margar mínútur í sumar en honum hefur engu að síður tekist að bjarga stigum fyrir FH-liðið í tveimur leikjum í röð. Markakóngur Pepsi-deildarinnar 2013 hefur ekkert kólnað niður þrátt fyrir harðan vetur og það er ekki síst honum að þakka að FH-liðið situr nú í efsta sæti Pepsi-deildarinnar að loknu fimm leikja hraðmóti maímánaðar.

Heimir Guðjónsson hefur sent Atla Viðar inná á 64. mínútu í síðustu tveimur leikjum og Atli Viðar hefur launað honum með mikilvægu marki í þeim báðum.

Í fyrri leiknum í stöðunni 0-0 á móti ÍBV þar sem Atli Viðar skoraði sigurmarkið á fimmtu mínútu í uppbótartíma. Í seinni leiknum kom Atli Viðar inn á umræddri 64. mínútu þegar FH-liðið var bæði marki og manni undir á útivelli á móti Keflavík. Atli Viðar skoraði jöfnunarmarkið á 83. mínútu.

Keflvíkingar ættu reyndar að vera orðnir vanir því að sækja boltann í markið sitt eftir skot frá Atla Viðari sem hefur nú skorað í fimm leikjum í röð á móti Keflavíkurliðinu eða öllum leikjum sínum gegn liði Bítlabæjarins frá því sumarið 2010.

Atli Viðar fékk ekkert að koma við sögu í fyrstu þremur leikjum FH-liðsins en með því að skora í báðum sínum leikjum hefur hann nú náð að skora í sex síðustu leikjum sínum í Pepsi-deildinni og það samtals 9 mörk.

Það merkilega er að Atli Viðar hefur komið inn á sem varamaður í fjórum af þessum sex leikjum og skorað „úrslitamark“ í þeim öllum eða tvö sigurmörk og tvö jöfnunarmörk. Atli Viðar hefur aðeins spilað í 272 mínútur (af 540 mögulegum, 50 prósent) í þessum sex leikjum sem þýðir að hann hefur skorað á hálftíma fresti í síðustu sex deildarleikjum sínum.

Nú er Atli Viðar kominn með 92 mörk í efstu deild og nálgast óðum hundrað marka kúbbinn. Atla Viðar vantar tvö mörk til að jafna Matthías Hallgrímsson í 5. sætinu og þrjú mörk til að ná Hermanni Gunnarssyni í 4. sætinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×