Tónlist

Odell heimtar banana baksviðs

Tom Odell fer ekki fram á neinar rósir baksviðs en vill þó fá þroskaða banana.
Tom Odell fer ekki fram á neinar rósir baksviðs en vill þó fá þroskaða banana. mynd/einkasafn
„Hann er nú með hefðbundinn og þægilegan kröfulista en hann vill fá banana og verða þeir að hafa þroskast í sjö og hálfa viku,“ segir tónleikahaldarinn Guðbjartur Finnbjörnsson spurður út í kröfulista breska tónlistarmannsins Toms Odell sem heldur tónleika í Hörpu 26. júlí næstkomandi.

„Hann fer fram á fleiri ávexti og, að fá góðan mat að borða fyrir tónleika og munum við fúslega verða við þeirri beiðni,“ segir Guðbjartur.

Miðasala á tónleikana gengur vel og er lítið magn af miðum eftir. „Mér skilst að það séu um 1.200 miðar seldir þannig að það er ekki mikið eftir.“

Tom Odell vill fá sjö og hálfs vikna gamla banana.
Tom Odell skaust upp á stjörnuhimininn á síðasta ári þegar hann gaf út plötuna Long Way Down og hefur meðal annars hitað upp fyrir Elton John á tónleikum.

„Hann er að fara að hita upp fyrir Neil Young á tónleikum í Hyde Park í London í sumar,“ segir Guðbjartur. Þá hefur hann á tónleikum sínum einnig leikið ábreiður þekktra laga Bítlanna eins og Oh Darling og Get Back.

Heyrst hefur að Eyþór Ingi og Atómskáldin muni sjá um upphitun á tónleikum Odells í Hörpu. „Það liggur ekki alveg ljóst fyrir hver sér um upphitun en það kemur í ljós á næstunni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.