Lífið

„Þinn persónulegi stíll skiptir svo miklu máli“

Baldvin Þormóðsson skrifar
Brynjar Dagur vill vekja athygli á popping-dansstílnum.
Brynjar Dagur vill vekja athygli á popping-dansstílnum. vísir/andri marínó
Götudansmenningin á Íslandi fer ört vaxandi og þá ekki síst vegna nýjasta popping-dansæðisins og sigurvegara í Ísland Got Talent sem sérhæfir sig í slíkum danssporum. Sjálfur segist Brynjar Dagur Albertsson vonast til þess að sjá danssenuna stækka enn meira.

„Ég er búinn að heyra að fullt af yngri krökkum sem sáu atriðið í þættinum ætli að reyna fyrir sér í popping,“ segir Brynjar Dagur. „Ég held að atriðið hafi vakið athygli á þessu og ég vona að margir muni byrja að poppa.“ Brynjar Dagur lærði umræddan dansstíl hjá Brynju Péturs í götudansskólanum hennar.

„Popping-tæknin er í grunninn bara vöðvastjórnun,“ segir Brynja. „Þú spennir og sleppir vöðva. Þú ert að þjálfa þannig að ‘hittin' þín verði eins sterk og hægt er.“

Svonefndur popping-dansstíll varð til á vesturströnd Bandaríkjanna í lok sjöunda áratugarins og var mikið dansaður við fönk- og raftónlist.

Brynja Péturs og Natasha Monay Royal ásamt nemanda sínum, Brynjari Degi, eftir sigur hans í Ísland Got Talent.mynd/einkasafn
„Nú í dag eru dansararnir líka farnir að dansa við dubstep, eins og Brynjar gerði í Ísland Got Talent,“ segir Brynja sem hefur verið að kenna götudans á Íslandi í tíu ár. „Ég byrjaði að kenna popping í fyrra, síðan hef ég fengið erlenda gestakennara frá New York sem eru bæði upprennandi dansarar og stór nöfn,“ segir Brynja. 

Einn gestakennaranna var götudansarinn Android sem kenndi Brynjari Degi fyrstu popping-sporin. „Ég lærði mikið af honum, síðan hef ég líka fengið kennslu hjá Buddha Stretch, Munk og Hurricane í gegnum Brynju,“ segir Brynjar og bætir því við að hann dansi örlítið öðruvísi útgáfu af dansstílnum en vant er. 

„Alvöru popping er svona búggalú í mjöðmunum og stórar hreyfingar, en ég er meira í róbót og minni hreyfingum,“ segir ungi dansarinn en Brynja Péturs segir að hver dansari hafi sinn eigin stíl. 

„Þú kemur inn í samfélagið og þinn persónulegi stíll skiptir svo miklu máli, þú ert að læra að vera sterkur einstaklingur í dansi.“ 

Áhugasömum er bent á dansskóla Brynju Péturs og einnig dansnámskeiðin í Kramhúsinu en þar geta nemendur lært flestallar stefnur götudansins. Aðspurður hvort hann fari að setja sig í kennarahlutverkið segist Brynjar Dagur fyrst þurfa að fræðast og læra meira um stefnuna. „En það væri mjög gaman að kenna.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.