Tónlist

Kaffi, kökur og Gunni Þórðar

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Gunnar Þórðarson stígur á svið í Von í kvöld.
Gunnar Þórðarson stígur á svið í Von í kvöld. Vísir/Stefán
„Þetta hefur verið að ganga frábærlega hjá okkur,“ segir Rúnar Freyr, samskiptafulltrúi SÁÁ, um tónleikaröð SÁÁ, Kaffi, kökur, rokk & ról. Síðustu tónleikar í röðinni fyrir sumarið verða haldnir í kvöld í Von, húsi SÁÁ, Efstaleiti 7. Það er enginn annar en Gunnar Þórðarson sem sér um að skemmta gestum.

„Ég held ég geti lofað frábærum tónleikum. Gunna Þórðar þarf ekki að kynna fyrir neinum enda okkar ástsælasti tónlistarmaður. Hann er alltaf frábær, það er bara þannig. Og í kvöld mætir hann einn með gítarinn og tekur öll sín þekktustu lög. Þetta verður æðislegt. Miðaverð er þúsund krónur og í boði er kaffi, kökur og Gunni Þórðar,“ segir Rúnar Freyr, sem er afar ánægður með viðtökurnar sem tónleikaröðin hefur fengið.

„Hingað koma allra bestu tónlistarmenn þjóðarinnar síðasta þriðjudag hvers mánaðar og fólk nýtur þess að mæta á gæðatónleika í edrú umhverfi. Sumir koma meira að segja með unglingana sína með.“

Húsið verður opnað kl. 20.00 og tónleikarnir byrja klukkan 20.30.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.