Tónlist

Lengsta tónleikaferðalagið til þessa

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Hljómsveitin Skálmöld spilar á 37 tónleikum í 14 löndum í haust.mynd/lalli sig
Hljómsveitin Skálmöld spilar á 37 tónleikum í 14 löndum í haust.mynd/lalli sig Mynd/Lalli Sig
„Þetta er lengsti og umfangsmesti túr sem við höfum farið í og við hlökkum mikið til,“ segir Snæbjörn Ragnarsson, betur þekktur sem Bibbi, bassaleikari Skálmaldar. Sveitin heldur af stað í tónleikaferðalag um Evrópu, þar sem hún hitar upp fyrir eina þekktustu þjóðlagaþungarokkshljómsveit í heimi, Eluveitie frá Sviss. Um er að ræða 37 tónleika í fjórtán löndum.

„Við fengum boð frá bókunarskrifstofunni okkar, Dragon Productions, um að fara í þennan túr og vorum heldur betur til í það, þetta er risaband,“ segir Bibbi spurður út í ferlið. Hann segist hafa þekkt Eluveitie mjög vel fyrir. „Ég hef vitað af bandinu í svona tíu ár. Ég veit að hljómsveitir bíða í röðum eftir því að fá að fara á túr með þeim,“ bætir Snæbjörn við.

Skálmaldarmenn eru um þessar mundir lokaðir inni í æfingarhúsnæði sínu við lagasmíðar. „Við erum að semja á fullu og ætlum að vera komnir með plötu þegar við förum í þennan túr.“ Skálmöld stefnir á að gefa út nýja plötu í september- eða októbermánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.