Tónlist

Kóngurinn í kóngsins Kaupinhafn

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Bubbi Morthens kemur fram á Friggjartónlistarhátíðinni í Kaupmannahöfn í maí.
Bubbi Morthens kemur fram á Friggjartónlistarhátíðinni í Kaupmannahöfn í maí. fréttablaðið/gva
„Jú, jú, ég er að spila á hátíðinni og ætla taka með mér litla hljómsveit,“ segir tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens en hann kemur fram á tónlistarhátíð sem ber nafnið Frigg og fer hún fram í kóngsins Kaupmannahöfn dagana 9. og 10. maí.

Hátíðin er ný af nálinni og kemur fram fjöldi tónlistarmanna frá Danmörku, Færeyjum, Grænlandi og Íslandi. Bubbi er ekki eini íslenski listamaðurinn sem fram kemur á hátíðinni því hljómsveitirnar Kaleo, Vök og Hjálmar spila einnig á Friggjarhátíðinni. Þá koma meðal annars fram danska söngkonan Medina, færeyska söngkona Eivör Pálsdóttir og færeyska rokkhljómsveitin Týr.

„Ég veit voða lítið um hátíðina en þetta verður skemmtilegt,“ segir Bubbi en hann hefur alloft komið fram í Kaupmannahöfn.

Hugmyndin á bak við hátíðina er að skapa nægtahorn góðrar tónlistar frá Færeyjum og öðrum löndum í Norður-Atlantshafi og krydda hana með forvitnilegum mat og annarri norrænni menningu.

Frumkvæðið að hátíðinni áttu þeir Steintór Rasmussen og Hans Petur í Brekkunum. Hans Petur er saxófónleikari og veitir Færeyjahúsinu í Kaupmannahöfn forstöðu en Steintór er stofnandi Sumarhátíðarinnar í Klakksvík. Friggjarhátíðin gæti varla verið meira miðsvæðis því hún fer fram í hjarta Kaupmannahafnar, nánar tiltekið í Kongens Have.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.