Tónlist

Valdimar spilar nýtt efni á Rosenberg

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Valdimar
Valdimar Vísir/úr einkasafni
„Það búa tveir meðlimir sveitarinnar úti og annar þeirra er á landinu og því ætlum við að nýta tækifærið og telja í tónleika,“ segir Valdimar Guðmundsson söngvari og básúnuleikari hljómsveitarinnar Valdimars. Sveitin kemur fram á tónleikum á Café Rosenberg á laugardagskvöldið.

Hljómsveitin hefur lítið komið fram hér á landi undanfarið og eru þetta fyrstu tónleikar sveitarinnar á Íslandi á árinu.

„Við fáum Arnljót Sigurðsson til að hlaupa í skarðið hjá okkur og plokka bassann.“

Sveitin lauk nýverið við sína fyrstu tónleikaferð um Evrópu en þar lék hún á sjö tónleikum í Þýskalandi, Austurríki og í Sviss.

Valdimar er nú á fullu að vinna í nýrri plötu.

„Við erum búnir að taka upp grunnana að mestu leyti þannig að Guðlaugu bassaleikari og Þorvaldur trommari eru að mestu búnir að taka sína parta upp. Við stefnum svo á að reyna koma plötunni út seint í sumar,“ segir Valdimar um nýju plötuna.

Hljómsveitin hefur áður gefið út tvær breiðskífur, Undraland og Um stund.

Valdimar ætlar að leika nýtt efni á tónleikunum.

„Við tökum eitthvað af nýjum lögum en er þó ekki alveg viss hversu mörg,“ segir Valdimar.

Tónleikarnir eru eins og fyrr segir á Café Rosenberg, klapparstíg og hefjast klukkan 22.00. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.