Leikjavísir

Candy Crush fyrir 70 milljarða

Freyr Bjarnason skrifar
Tölvuleikurinn Candy Crush Saga þykir ávanabindandi.
Tölvuleikurinn Candy Crush Saga þykir ávanabindandi. Mynd/AP
Fyrirtækið á bak við tölvuleikinn vinsæla Candy Crush Saga telur að það geti safnað tæplega 613 milljónum dala, eða um sjötíu milljörðum króna, þegar það verður skráð á markað.

King Digital Entertainment PLC stefnir á að selja 15,3 milljónir hluta í hlutafjárútboðinu. Núverandi hluthafar munu selja 6,7 milljónir hluta til viðbótar.

„Candy Crush“ var það fría smáforrit sem var oftast halað niður á iPhone og iPad á síðasta ári, enn meira en Facebook, Google Maps og YouTube.

Búist er við að verðið á stöku hlutabréfi verði í kringum 2.300 til 2.700 krónur. Bréfin verða fáanleg á hlutabréfamarkaðnum í New York undir tákninu „KING“.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×