Lífið

Hönnunarferðamenn eyða meiru og dvelja lengur

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Greipur Gíslason
Greipur Gíslason BB/Halldór Sveinbjörnsson
HönnunarMars fer fram í sjötta skipti í lok mánaðarins.

Undirbúningur stendur sem hæst en endanleg dagskrá hátíðarinnar verður kynnt í næstu viku. Vel yfir 100 viðburðir eru skráðir til leiks en í ár er metfjöldi erlendra þátttakenda í dagskránni.

„Hátíðin er farin að vekja meiri athygli meðal hönnuða utan landsteinanna og virðist hafa eitthvert aðdráttarafl,“ segir Greipur Gíslason, verkefnastjóri HönnunarMars.

„Þetta stafar sjálfsagt af nokkrum mismunandi hlutum eins og auknum áhuga erlendra blaðamanna sem erlendir hönnuðir vilja komast í, eins er það hátíðin sjálf og stemningin hér sem dregur að.“

Það virðist sem almennum erlendum gestum fjölgi töluvert milli ára.

„Við finnum fyrir miklum áhuga meðal skólahópa og fagfólks, frá Evrópu og Ameríku. Hátíðin hefur á sér ferskan og skemmtilegan blæ sem er blanda af Reykjavík, Íslandi, grasrót og vonandi einhverri fag- og atvinnumennsku.“ Greipur segir takmarkið auðvitað vera að fjölga þessum ferðamönnum því dæmin sanni að hönnunarferðamenn séu góðir gestir, dvelji lengur, eyði meiru og gangi vel um.

„Já, á næstu fjórum árum vil ég sjá þúsund erlenda gesti á HönnunarMars, það er mjög raunhæft.“

Hápunktur HönnunarMars ár hvert er fyrirlestradagurinn DesignTalks. Í ár er hann stjörnum prýddur. Hefur það ekki jákvæð áhrif?

„Auðvitað, flott dagskrá með áhugaverðum atriðum hefur alltaf áhrif og vekur athygli. Mörg stór erlend blöð og tímarit hafa sett sig í samband við HönnunarMars og óskað eftir því að fá að koma til að fjalla sérstaklega um DesignTalks. Þar virðist ameríski tískukóngurinn Calvin Klein eiga stóran hlut að máli en hann heldur mjög sjaldan fyrirlestra eins og hann hyggst gera hér á HönnunarMars.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.