Tónlist

Mezzoforte spilar á Svalbarða

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Mezzoforte eru hér alsælir á Svalbarða en þeir þurfa að passa sig á ísbirnunum.
Mezzoforte eru hér alsælir á Svalbarða en þeir þurfa að passa sig á ísbirnunum. mynd/einkasafn
„Við verðum hér bara í einn dag, fljúgum svo til Óslóar og síðan förum við til Danmerkur,“ segir Gunnlaugur Briem, trommuleikari Mezzoforte, en hljómsveitin er nú stödd á Svalbarða, sem er einn viðkomustaða á tónleikaferðalagi hennar.

Þar kemur hún fram á djasshátíðinni Polarjazz en þetta er nyrsta djasshátíð sem finnst í heiminum. Hún er jafnframt fyrsta íslenska sveitin til að koma fram á hátíðinni. „Aðbúnaðurinn er uppá það besta en það er reyndar frekar kalt hérna og svo myrkur allan sólarhringinn,“ útskýrir Gunnlaugur.

Tónleikarnir eru hluti af Skandinavíu- og Þýskalandstúr Mezzoforte. „Við höfum spilað mikið í Noregi en höfum aldrei farið svona norðarlega,“ bætir Gunnlaugur við.

Polarjazz-hátíðin fer fram í Longyearbyen sem er stærsta þorpið á Svalbarða. „Hér búa um 2.500 manns en þrjú þúsund ísbirnir,“ segir Gunnlaugur og bætir við að meðlimir sveitarinnar hafi enn ekki rekist á lifandi ísbjörn. „Við sáum bara uppstoppaðan ísbjörn í flugstöðinni.“

Mezzoforte klárar tónleikaferðalagið um miðjan mánuðinn en alls eru ellefu tónleikar bókaðir á tónleikaferðalaginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.