Lífið

Calvin Klein verður meðal fyrirlesara HönnunarMars

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Mynd/Steven Klein
Bandaríski fatahönnuðurinn Calvin Klein mun flytja erindi á „DesignTalks“-fyrirlestradegi Hönnunarmiðstöðvar á HönnunarMars 27. mars næstkomandi. Greipur Gíslason, verkefnastjóri HönnunarMars, er gríðarlega spenntur fyrir stóra deginum.

„Við vorum að leita að einhverjum sem gæti talað um stefnumótun fyrirtækis í áraraðir og hugsanlega stefnumótun þess að draga sig í hlé sem er mjög áhugavert,“ segir Greipur.

„Calvin kom auðvitað strax upp í hugann og við nýttum persónulega vináttu og tengsl sem virkaði – spiluðum bara Íslandsspilinu,“ útskýrir Greipur, léttur í bragði.

Calvin Klein ætti að vera flestum kunnugur en hann hefur um árabil verið einn fremsti fatahönnuður og ilmvatnsframleiðandi heims.

Í erindi sínu á fyrirlestradeginum í Hörpu mun hann meðal annars fjalla um stefnumótun og aðferðir á ólíkum stigum starfsferils síns og mikilvægi samvinnu þvert á hönnunargreinar.

„Fyrirlestradagurinn á HönnunarMars er að verða mikilvægasti vettvangur umræðu um framtíðina á sviði hönnunar á Íslandi en honum er líka ætlað að gefa öðrum geirum tækifæri til að kynna sér mátt hennar í rekstri fyrirtækja, sveitarfélaga og jafnvel þjóða. Þar verða fyrirlestrar Wong, Firth og Steinberg mjög áhugaverðir,“ bætir Greipur en við, en ásamt Calvin Klein verða fyrirlesarar þau Robert Wong hjá Google Creative Lab, Kathryn Firth, arkitekt og hönnunarstjóri hjá London Legacy Development Corporation, Mikael Schiller, stofnandi sænska fatamerkisins Acne Studios, og Marco Steinberg, fyrrverandi stjórnandi Helsinki Design Lab.

„Það verður auðvitað gaman að heyra í öllum en ég reikna með að Calvin eigi eftir að geta skilið kjarna byggðan á reynslu frá hismi sem oft virðist einkenna umræðuna,“ segir Greipur að lokum.

Miðasala á fyrirlestradaginn hefst í dag á midi.is



Calvin Klein stofnaði fyrirtækið Calvin Klein Inc. ásamt æskuvini sínum árið 1968. Frá stofnun hefur fyrirtækið verið forystuafl í tískuheiminum og táknberi fyrir einfaldleika og fágun. Auk fatnaðar, framleiðir fyrirtækið ilmvötn og húsbúnað.

Í nálgun sinni leggur Klein áherslu á að hanna nýja hluti sem hæfa nútímamanninum og heimili hans.

Calvin Klein er meðal þekktustu vörumerkja heimsins og er virði merkisins metið á yfir 7 milljarða Bandaríkjadollara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.