Fótbolti

Börsungar skutu eintómum púðurskotum gegn Getafe

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ivan Rakitic og félagar komust lítt áleiðis gegn Getafe í dag.
Ivan Rakitic og félagar komust lítt áleiðis gegn Getafe í dag. Vísir/afp
Barcelona mistókst að saxa á forskot Real Madrid á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn Getafe á útivelli í dag.

Börsungar voru miklu meira með boltann í leiknum, en gekk illa að skapa sér opin færi gegn þéttri vörn heimamanna.

Lionel Messi komst næst því að skora í byrjun seinni hálfleiks þegar skot hans beint úr aukaspyrnu small í slánni.

Umdeilt atvik átti sér undir lokin þegar dómari leiksins flautaði til leiksloka þegar Getafe var komið í dauðafæri. Þar slapp Barcelona fyrir horn.

Börsungar eru nú fjórum stigum á eftir Real Madrid, en bæði lið hafa leikið 15 leiki í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×