Fótbolti

Alfreð spilaði í markalausu jafntefli

Alfreð á ferðinni með Sociedad.
Alfreð á ferðinni með Sociedad. vísir/getty
Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Real Sociedad er það mætti B-deildarliði Real Oviedo í bikarnum.

Þetta var fyrri leikur liðanna í keppninni og á heimavelli Oviedo sem er í efsta sæti spænsku B-deildarinnar.

Sociedad var mun meira með boltann, átti fleiri færi en tókst ekki að koma boltanum í netið. Liðið á samt heimaleikinn inni.

Alfreð spilaði allan leikinn í framlínu liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×