Far Cry 4: Kunnugleg fjallganga Samúel Karl Ólason skrifar 7. desember 2014 13:00 Söguhetja leiksins þarf að koma Pagan Min frá völdum til að geta dreift ösku móður sinnar.
Ferðalag Ajay Ghale um landið Kyrat, sem umlukið er Himalaya fjöllunum, er skemmtilegt en þó verulega kunnulegt. Far Cry 4 er í grunninn alveg eins og Far Cry 3, bara stærri og það er meira af vopnum, farartækjum, dýrum, fólki og í raun öllu. Sem áður er sagan á köflum í besta falli ágæt en húmornum hefur verið veitt aukið vægi. Leikurinn gengur út á að hjálpa heimamönnum við að koma einvaldi frá völdum. Til þess þarf að hertaka varðstöðvar og opna ný svæði á kortinu með því að klifra upp turna og leysa hin ýmsu verkefni. Leikmaður veiðir dýr til þess að geta borið fleiri vopn, meira af skotfærum og fleiri sprengjur.Far Cry hefur tekið heilmiklum breytingum frá því að Jack Carver barðist við skrýmsli í Suður-Kyrrahafi árið 2004. Á milli Far Cry 3 og 4 eru breytingarnar hins vegar ekki miklar. Leikurinn er þó skemmtilegri en forveri sinn og það er mun meira að gera í honum. Helsta breytingin er þó að nú er boðið upp á fjölspilun. Bæði er hægt að berjast gegn vinum sínum og með þeim í gegnum sögu leiksins. Meðal dýra sem hægt er að veiða í leiknum eru svín, úlfar, tígrisdýr, jakuxar (auðvitað), greifingjar, fílar og nashyrningar. Sum eru hættulegri en önnur en fílarnir hafa sérstöðu. Leikmenn geta stokkið á bak dýranna og stýrt þeim. Það er fátt meira gefandi en að sitja á fíl, vopnaður stórri vélbyssu og sprengjuvörpu.Vinir geta spilað saman í gegnum söguþráð Far Cry.Við spilun leiksins koma upp nokkur tilvik þar sem leikmaður þarf að taka ákvörðun sem hefur afleiðingar inn í leikinn og getur leikurinn endað á mismunandi vegu. Einn endirinn er þó merkilegri en aðrir, en við förum ekki nánar út í það.Far Cry 4 er skemmtilegur leikur sem hefur endurspilunargildi. Líklega mun það ekki borga sig fyrir Ubisoft að leika sama leikinn þrisvar, ef svo má að orði komast, og vonandi verður meiri framþróun í næsta Far Cry leik. Aðdáendur leikjanna verða þó ekki fyrir vonbrigðum með þennan, sem er frekar skemmtilegur. Í raun gengur Far Cry út á það að vera skemmtilegur og tekst honum það vel.
Leikjadómar Leikjavélar Leikjavísir Mest lesið Dvaldi í tjaldi á hringtorgi þar til lögreglan kom Lífið Vann til margra verðlauna fyrir stól sem slær í gegn Tíska og hönnun Lesbíska dragdrottningin sem er að sigra tónlistarheiminn Tónlist Starfsfólkið í fyrsta sæti og börnin í öðru Lífið Aukin lofthæð, Versace flísar, pottur og pool herbergi Lífið Akureyringar komast loksins á Prikið Lífið Íslenskir dansarar sópa til sín verðlaunum á heimsmeistaramóti Lífið Tinna Brá og Ari Eldjárn færðu fertugsafmælið út á sjó Lífið Hugmyndin var að kveikja bókstaflega í Emmsjé Gauta Tónlist Myndaveisla: Metfjöldi á opnunarhelgi Hjarta Hafnarfjarðar Lífið Fleiri fréttir Plortedo heldur til Landanna á milli GameTíví: Plorrinn spilar Fallout Ghost of Tsushima: Kominn út á PC og enn geggjaður Sjá meira