Fótbolti

Erfiðara fyrir Messi og Ronaldo að skora í ítalska boltanum

Er spænski boltinn auðveldari en sá ítalski? Messi og Ronaldo gætu líklega skorað hvar sem er.
Er spænski boltinn auðveldari en sá ítalski? Messi og Ronaldo gætu líklega skorað hvar sem er. vísir/afp
Lionel Messi og Cristiano Ronaldo eru í sérflokki í fótboltanum í dag en til er maður sem efast um hvort þeir myndu vera eins öflugir í ítalska boltanum.

Sá heitir Fernando Llorente en hann spilar með Ítalíumeisturum Juventus.

„Messi og Ronaldo eru frá annarri plánetu en ég væri til í að sjá þá í ítalska boltanum," sagði Llorente.

„Varnirnar eru ótrúlega þéttar hérna og margir leikmenn fyrir aftan boltann. Það yrði erfiðara fyrir þá að skora á Ítalíu."

Llorente verður á ferðinni með Juventus í kvöld er liðið spilar afar mikilvægan leik í Meistaradeildinni gegn Atletico Madrid.

Juventus þarf að fá stig í leiknum til þess að komast áfram í keppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×