Tónlist

Rappari býr til lög með því að slá í rúður og sæti í lestum

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
MC Mooks hefur slegið í gegn.
MC Mooks hefur slegið í gegn.
Rappari frá Ástralíu hefur slegið í gegn á netinu með því að rappa yfir takta sem hann býr til með því að slá í sæti og glugga í lestum og strætisvögnum.

Hann kallar sig MC Mooks, en var skírður Geoffrey Granz og er frá Brisbane í Ástralíu.

Hér að neðan má sjá hans vinsælasta myndband, en horft hefur verið á það í næstum milljón skipta. Það birtist á vefnum í mars á síðasta ári, en MC Mooks er enn að eins og sjá má hér að neðan.



Hann setur myndbönd á Facebook, Twitter og Youtube og hefur þannig náð til mikils fjölda fólks. Til að mynda hefur verið horft á myndböndin hans í næstum 1,5 milljón skipta á Youtube. 42 þúsund manns fylgja honum á Facebook þar sem hann er duglegur að birta fréttir að sjálfum sér, ný lög og fleira tengt hans ferli.

Hans vinsælasta myndband varð til fyrir algjöra tilviljun, eins og Granz hefur sagt áströlskum fjölmiðlum. Granz kynntist manni sem vildi fá að taka upp eitt lagið hans, þegar þeir ferðuðust í lest í Brisbane. Granz sló til og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Myndbandið fór eins og eldur í sinu um netið og hefur rapparinn byggt feril sinn upp með sitt fyrsta myndband að vopni. „Ég er rapparinn sem rappaði í lestinni og sló í gegn á netinu,“ segir hann á Facebook-síðu sinni.

Hér að neðan má svo sjá fleiri lög og myndbönd með MC Mooks.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.