Fótbolti

Ótrúleg endurkoma hjá Anderlecht

Cazorla og Sanchez fagna marki þess síðarnefnda í kvöld.
Cazorla og Sanchez fagna marki þess síðarnefnda í kvöld. Vísir/Getty
Hið unga lið Anderlecht átti eina af endurkomum ársins á Emirates í kvöld gegn Arsenal. Eftir að hafa lent þrem mörkum undir náði liðið að jafna og næla í stig.

Mikel Arteta kom Arsenal yfir snemma leiks með marki úr vítaspyrnu. Örugg spyrna. Alexis Sanchez bætti öðru marki við skömmu síðar. Aukaspyrna í vegginn en náði frákastinu og skoraði. Ekki flókið mál. Hans ellefta mark í síðustu þrettán leikjum fyrir félagið.

Þegar Oxlade-Chamberlain bætti þriðja markinu við voru einhverjir farnir að fagna. Það reyndist vera slæm ákvörðun. Anderlecht blés til mikillar sóknar og náði að jafna á hreint ótrúlegan hátt. Pressan sem liðið setti á Arsenal var með hreinum ólíkindum.

Arsenal enn í öðru sæti riðilsins en Anderlecht er enn á lífi.

Vítaspyrnumark Arteta. Alexis Sanchez kemur Arsenal í 2-0. Uxinn kemur Arsenal í 3-0. Anderlecht minnkar muninn. Anderlecht skorar aftur. 3-2. Anderlecht jafnar leikinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×