Fótbolti

Varalið Liverpool spilar gegn Real Madrid

Gerrard byrjar á bekknum.
Gerrard byrjar á bekknum. vísir/getty
Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, stillir upp afar áhugaverðu liði gegn Real Madrid í Meistaradeildinni í kvöld.

Steven Gerrard, Mario Balotelli, Raheem Sterling, Jordan Henderson og Coutinho eru allir á bekknum hjá Liverpool í kvöld. Liverpool á leik gegn Chelsea um næstu helgi og engu líkara en Rodgers hafi enga trú á sínu liði í kvöld og vilji frekar hvíla menn fyrir Chelsea-leikinn.

Byrjunarlið Liverpool er með Mignolet, Manquillo, Toure, Skrtel, Moreno, Lucas, Can, Allen, Lallana, Markovic og Borini. Aðeins Mignolet, Moreno, Allen og Skrtel spiluðu leik liðanna fyrir tveim vikum síðan.

Lið Real Madrid er ívið sterkara á pappírnum. Casillas, Arbeloa, Varane, Ramos, Marcelo, Modric, Kroos, Rodriguez, Isco, Ronaldo og Benzema. Gareth Bale byrjar á bekknum í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×