Fótbolti

Öll mörk gærkvöldsins í Meistaradeildinni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Átta leikir fóru fram í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi og var þeim öllum gerð góð skil í Meistaradeildarmörkunum á Stöð 2 Sport.

Real Madrid vann nauman sigur á gerbreyttu liði Liverpool, 1-0, sem náði þrátt fyrir allt að standa í spænska stórveldinu.

Arsenal komst í 3-0 forystu gegn Anderlecht en kastaði henni frá sér á lokamínútum leiksins á ótrúlegan máta.

Aðrir átta leikir eru á dagskrá Meistaradeildar Evrópu í kvöld og verður þeim einnig gerð góð skil á Stöð 2 Sport og hér á Vísi.


Tengdar fréttir

Rodgers: Ég vissi hvað ég var að gera

Margir sökuðu Brendan Rodgers, stjóra Liverpool, um að kasta inn hvíta handklæðinu fyrir leikinn gegn Real Madrid í kvöld en liðið sem hann valdi fékk aðeins á sig eitt mark.

Ótrúleg endurkoma hjá Anderlecht

Hið unga lið Anderlecht átti eina af endurkomum ársins á Emirates í kvöld gegn Arsenal. Eftir að hafa lent þrem mörkum undir náði liðið að jafna og næla í stig.

Son sá um Zenit

Þýska liðið Bayer Leverkusen sótti þrjú stig gegn Zenit í Meistaradeildinni í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×