Fótbolti

Real fór létt með Granada | Sjáðu stórbrotið mark James

Anton Ingi Leifsson skrifar
Liðsmenn Real fagna.
Liðsmenn Real fagna. vísir/getty
Real Madrid lenti ekki í neinum vandræðum með Granada í spænska boltanum í dag, en lokatölur 4-0 sigur Madrídarliðsins.

Cristiano Ronaldo kom Real yfir með marki eftir tvær mínútur og James Rodriguez tvöfaldaði forystuna með frábæru marki eftir hálftíma leik. Þannig var staðan í hálfleik.

Karim Benzema bætti við þriðja markinu og James Rodriguez skoraði annað mark sitt og fjórða mark Real stuttu fyrir leikslok. Lokatölur eins og fyrr segir 4-0.

Real fór með sigrinum á toppinn, en Barcelona getur náð toppsætinu aftur með sigri á Celta Vigo í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×