Heilsa

Óhollasti hollustumaturinn

Ragnheiður Guðmundsdóttir skrifar
visir/getty
Brenda Leigh Turner er mikil áhugamanneskja um hollt mataræði eftir að hún sneri frá óheilbrigðu líferni og gerðist keppandi í fittness. Hún á að baki 9 ára reynslu í faginu og heldur nú úti heimasíðunni leansecrets þar sem hún ræðir um mikilvægi næringar og hreyfingar. Í meðfylgjandi myndbandi fer hún yfir 10 vörur sem eru markaðsettar sem hollustuvörur en eru kannski ekki svo hollar eftir allt saman.

Sumar vörurnar eru ekki allir sammála um hvort séu hollar eða ekki. Hveiti hefur verið mikið í umræðunni undanfarið og margir sérfræðingar sem halda því fram að það eigi ekki neyta þess vegna þess hversu slæm áhrif það hafi á þarmaflóruna og aðra líkamsstarfsemi.  Brenda er ein af þeim sem er mótfallin hveiti og útskýrir hvers vegna í myndbandinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.