Fótbolti

Atletico Madrid í fjórða sætið

Anton Ingi Leifsson skrifar
Tiago fagnar fyrra marki Atletico í dag.
Tiago fagnar fyrra marki Atletico í dag. Vísir/Getty
Atletico Madrid skaust í fjórða sæti spænsku úrvalsdeildarinnar með sigri á Espanyol í fyrsta leik dagsins.

Tiago kom Madrídarliðinu yfir eftir sendingu frá Gabi Fernández rétt fyrir hálfleik og Mario Suarez tvöfaldaði forystuna eftir 72. mínútur.

Lokatölur 2-0 og Atletico komið í fjórða sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir toppliði Barcelona. Espanyol er í því ellefta með níu stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×