Fótbolti

Hólmar og félagar héldu hreinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hólmar Örn í leik með Bochum fyrr á þessu ári.
Hólmar Örn í leik með Bochum fyrr á þessu ári. Vísir/Getty
Hólmar Örn Eyjólfsson spilaði allan leikinn í vörn Rosenborg sem vann góðan útisigur á Lilleström í kvöld, 2-0.

Pálmi Rafn Pálmason var í byrjunarliði Lilleström en var tekinn af velli á 81. mínútu. Bæði mörk leiksins komu í síðari hálfleik og það síðara í blálokin.

Rosbenborg er í þriðja sæti norsku úrvalsdeildarinnar með 48 stig en Lilleström í því fimmta með 40 stig.

Gengi liðanna hefur þó verið ólíkt síðustu vikurnar en Rosenborg hefur unnið fimm af síðustu sex leikjum sínum en Lilleström tapað þremur af síðustu fjórum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×