Fótbolti

Alfreð lék sinn fyrsta deildarleik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alfreð lék í 20 mínútur gegn Sevilla í kvöld.
Alfreð lék í 20 mínútur gegn Sevilla í kvöld. Mynd/Twitter
Alfreð Finnbogason lék sinn fyrsta deildarleik fyrir Real Sociedad þegar liðið tapaði fyrir Sevilla á útivelli með einu marki gegn engu.

Það var Gerard Deulofeu sem skoraði sigurmarkið á 18. mínútu, en hann er á láni hjá Sevilla frá Barcelona.

Alfreð kom inn á sem varamaður á 70. mínútu fyrir Sergio Canales, en íslenski landsliðsmaðurinn náði ekki að láta verulega að sér kveða.

Með sigrinum jafnaði Sevilla Barcelona að stigum á toppi deildarinnar, en bæði lið eru með 13 stig eftir fimm umferðir. Real Sociedad er hins vegar í 13. sæti með fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×