Fótbolti

Langþráður sigur Sandnes Ulf

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hannes Þór og félagar unnu loksins.
Hannes Þór og félagar unnu loksins. Heimasíða Sandnes Ulf
Viðar Örn Kjartansson var aldrei þessu vant ekki á skotskónum þegar Vålerenga tapaði mjög óvænt fyrir botnliði Sandnes Ulf á útivelli með tveimur mörkum gegn einu í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Diego Rubio skoraði bæði mörk Sandnes með fimm mínútna millibilli í seinni hálfleik, en Christian Grindheim skoraði mark Vålerenga.

Hannes Þór Halldórsson stóð að venju í marki Sandnes og þeir Eiður Aron Sigurbjörnsson og Hannes Sigurðsson léku einnig allan leikinn fyrir Úlfana sem eru enn á botni deildarinnar þrátt fyrir sigurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×