Fótbolti

Alfreð lék síðustu mínúturnar í jafntefli gegn Valencia

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Alfreð er að koma til baka eftir meiðsli
Alfreð er að koma til baka eftir meiðsli vísir/getty
Alfreð Finnbogason lék síðustu tólf mínúturnar þegar Real Sociedad gerði 1-1 jafntefli við Valencia á heimavelli í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Carles Gil kom Valencia yfir á 15. mínútu en Sergio Canales jafnaði metin á 36. mínútu en ekkert var skorað í seinni hálfleik.

Alfreð fékk eitt hálffæri rétt eftir að hann var kominn inn á en valdi að senda boltann inni í teignum en enginn samherji fylgdi honum.

Real Sociedad er með fimm stig í 14. sæti í sex leikjum en Valencia er í öðru sæti með 14 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×