Fótbolti

Sjáðu fyrsta mark Hólmberts fyrir Bröndby | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hólmbert Aron Friðjónsson, framherji U21 árs landsliðsins, skoraði sitt fyrsta mark fyrir danska úrvalsdeildarliðið Bröndby í gærkvöldi.

Hólmbert kom inn á sem varamaður þegar fimmtán mínútur voru eftir leiknum í stöðunni 2-1 fyrir Esbjerg og jafnaði HK-ingurinn metin nokkrum mínútum síðar með föstu skoti úr teignum. Afskaplega snoturt mark.

Fyrra mark Bröndby skoraði Finninn TeemuPukki sem er á láni frá Skotlandsmeisturum Celtic líkt og Hólmbert. Mörk þeirra beggja má sjá í spilaranum hér að ofan.

Bröndby er með 11 stig í sjöunda sæti deildarinnar eftir níu umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×