Heilsa

Kynfærafnykur

Sigga Dögg kynfræðingur skrifar
Kynfæri ilma eins og...kynfæri
Kynfæri ilma eins og...kynfæri Mynd/Getty
Það hefur löngum verið deilt um hvort fnykur eða ilmur einkenni kynfæri og er þetta algengt áhyggjuefni kvenna þegar kemur að píkunni.

Margir skírskotanir eru til um að píkan lykti eins og fiskur og að undir forhúð typpis safnist saman einskonar typpaostur sem minni á vel myglaðan ost. Þetta er umræða á villigötum sem hjálpar engum.

Því er tímabært að ræða þetta aðeins af hreinskilni.

Hvernig eiga kynfærin að lykta?

Það er erfitt að lýsa kynfæralykt því bæði er hún einstaklinsbundin en einnig skiptir máli á hvaða stað í tíðahringnum píkan er. Þá verður lyktin einnig önnur ef sæði blandast saman við píkuna því ákveðin lykt er af sæði.

Hvenær ætti ég að hafa áhyggjur?

Ef þér þykir lyktin sterk þegar þú ert nýkomin/nn úr sturtu þá getur það verið merki um einhvers konar bakteríu sýkingu, þá er gott að kíkja til læknis eða fá krem eða lyf í næsta apóteki.

Ef þér finnst lyktin sterk, kíktu þá til læknisMynd/Getty
Væri ekki best bara að skola með ilmandi sápu?

Kynfæri eru ekki hönnuð fyrir sápu, sérstaklega ekki þá sem inniheldur ilmefni. Það er nóg að skola bara kynfærin með vatni. Draga aftur forhúð ef þú ert með typpi og bara skola utan á píkuna en ekki sprauta vatni inn í leggöngin, alltaf bara utan á. Ilmandi krem og sápur geta valdið ertingu og því er vissara að sleppa því alfarið. Það eru til sérstakar sápur sem eru hannaðar fyrir kynfæraþvott.

En ég óttast munnmök útaf lyktinni...?

Ef þú telur að lyktin þín sé óeðlileg eða mjög sterk þá er gott að kíkja til læknis. Mundu að það er eðlilegt að það sé lykt af kynfærum og mörgum þykir lyktin æsandi og hluti af keleríinu.

Er eitthvað sem ég get gert til að bæta lyktina?

Farðu reglulega í sturtu (daglega), vertu í nærfatnaði sem er úr náttúrulegum efnum líkt og bómul og sumir mæla með að neyta vel af jógúrti til að viðhalda góðri bakteríuflóru.


Tengdar fréttir

Er píkan óhrein?

Kynlegir kvistir tóku tal af Kristínu Gunnlaugsdóttur listamanni en hún var með sýninguna Sköpunarverk í Listasafni Íslands þar sem aðal viðfangsefnið voru píkur.

Píkan

Allt sem þú þarft að vita um píkuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.