Tónlist

Óútgefin The Doors mynd á leiðinni

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Hljómsveitinni The Doors hefur verið lýst sem músíkölskum kjötætum á tímum grasbíta.
Hljómsveitinni The Doors hefur verið lýst sem músíkölskum kjötætum á tímum grasbíta. Getty
Heimildarmyndin Feast of Friends sem rokksveitin goðsagnakennda The Doors framleiddi upp á eigin spýtur árið 1968 verður loksins gefin út í nóvember. Myndin í heild sinni hefur verið óútgefin hingað til en klippur úr henni hafa verið notaðar í tónlistarmyndböndum og heimildarmyndum um sveitina.

Í myndinni fylgir tökulið hljómsveitinni á tónleikaferðalagi um Bandaríkin og sýnir líf þeirra á bak við tjöldin og á vegum úti.

Myndin verður gefin út á DVD og Blu-Ray 11. nóvember af Eagle Rock útgáfufyrirtækinu. Á disknum verður einnig heimildarmynd sem gerð var fyrir breskt sjónvarp árið 1968 að nafni The Doors Are Open ásamt tónleikaupptökum úr kanadísku sjónvarpi frá 1967 þar sem hljómsveitin spilar hið víðfræga og umdeilda lag þeirra, The End.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.