Reyndi að gabba andstæðinginn með því að þykjast deyja | Myndband 17. september 2014 22:00 Úr leik Arkansas State og Miami. vísir/getty
Menn hafa tekið upp á ýmsu til þess að hafa betur í íþróttum en ruðningslið Arkansas State fetaði alveg nýjar slóðir í þeim efnum um síðustu helgi. Í leik gegn Miami reyndu leikmenn Arkansas tvöfalt gabb. Þeir þóttust ætla að sparka boltanum burt en köstuðu honum síðan. Til þess að afvegaleiða leikmenn Miami enn frekar þóttist einn leikmaður Arkansas deyja inn á vellinum. Það er óhætt að segja að þessi taktík hafi sprungið í andlitið á þeim. Ekki bara köstuðu þeir boltanum beint í hendur leikmanns Miami heldur féll enginn fyrir því að leikmaðurinn væri dáinn. Miami nýtti sér þessi mistök til þess að skora snertimark og vann leikinn svo 41-20. Myndband af þessu ótrúlega atviki má sjá hér að neðan. Þess má geta að það var þaulæft alla vikuna en þjálfari liðsins var hjá North Carolina í fyrra þar sem liðið var með snilldarhrekk á leikstjórnanda liðsins. Þeir kalla þetta „fainting goats" eða geitur sem líður yfir. Myndband af hrekknum vinsæla hjá North Carolina er neðra myndbandið.
NFL Mest lesið Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur Sport Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Enski boltinn Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Handbolti „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Körfubolti Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Enski boltinn Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Fótbolti Fleiri fréttir Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Í beinni: Celta Vigo - Barcelona | Börsungar vilja svara fyrir tapið síðast Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Stelpur Þóris fóru illa með fyrsta mótherja Íslands Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Hvað gera flokkarnir fyrir afreksfólk í íþróttum? „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ „Tími til kominn að taka afstöðu gegn Ísrael“ Dagskráin í dag: Knicks ásamt íslenskum körfubolta og íslenskri pílu Aðalþjálfari Ítalíu var með hausverk og horfði ekki á seinni hálfleik Fer á mjög dimman stað þegar lið hans tapar Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Sjá meira