Heilsa

Hvað gerist þegar þú sýður gosdrykk?

Rikka skrifar
Mynd/getty
Fjölmörg myndbönd um notagildi gosdrykkja fara á fleygiferð milli manna á internetinu. Sum sýna það hvernig hægt er að þrífa klósettið með góðum árangri og einungis gosdrykk að vopni.

Önnur sýna það hvernig tennur hreinlega gufa upp á ótrúlega stuttum tíma í glasi fullu af gosdrykk.

Alls kyns misskemmtilegar útgáfur er að finna á slíkum tilraunum.

Við á Heilsuvísi rákumst á þetta forvitnilega myndband þar sem rússnenskur vísindamaður tekur sig til og sýður gosdrykk þar til að allur vökvi er úr honum farinn. Það er áhugavert að sjá það sem eftir liggur í pottinum. Nú er bara að prófa og sannreyna þessa útkomu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.